Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, janúar 26, 2005

Nú skal skeint!!!

Helv... ansk... djö... ferðanefnd!!!
Við erum að fara í námsferð til Tælands í vor - það kostar pening!
Það er búið að vera vitað í tæpt ár að við séum að fara til Tælands en er ferðanefndin búin að gera eitthvað í því?!?!
Jú, við erum búin að selja wc pappír einu sinni - og við höfðum 2 daga til að selja hann!!!
Svo núna var aftur boðað til fundar með ferðanefnd - nú átti sko að fá allt á hreint hvað varðar verð á ferðinni, sprautur sem við þurfum að fara í og síðast en ekki síst - fjáraflanir!
Ok, allir mæta á fund. Og það sem nefndin hefur að segja er að þau séu eitthvað búin að tala við einhver flugfélög varðandi kostnað á ferðinni - ekkert er komið í ljós með það! Svo voru þau búin að tala við einhvern lækni sem ætlaði trúlega að redda þessum sprautum og því - en það var ekkert hægt að staðfesta!!!
Síðan tilkynnti ferðanefnd það að á næstunni yrði ef til vill, trúlega, að öllum líkindum, bráðum farið að selja wc pappír!!!
Síðan var óskað eftir uppástungum um fleiri fjáraflanir!!!!

Ég gæti öskrað!!!
Við vorum kölluð á fund til þess að segja okkur að það væri ekkert búið að gerast!!!
Ég vil taka það fram strax að ástæða þess að ég er ekki sjálf í nefndinni er sú að það var svo crazy að gera hjá mér þegar valið var í hana að ég treysti mér ekki til þess - just to clarify!

En, breytir ekki því að ég ætla að reyna að vera skrefi á undan helv... ferðanefndinni og reyna að troða klósettpappír upp á alsaklausan almúgann!
Svo að:
Allir þeir sem kunna að meta góðan skeinipappír skulu ekki láta þetta frábæra tilboð framhjá sér fara!
Til sölu er eðalklósettpappír (þ.e.a.s. ekki sandpappír), 48 rúllur á aðeins 2.000 kr.
Að sama skapi eru 24 eldhúsrúllur á einungis 2.000 kr.
Tökum nú höndum saman, styrkjum fátækan námsmann í baráttunni og skeinum sem aldrei fyrr!!!

Það er reyndar ekki kominn tími á hvenær pappírinn verður afhentur, en það verður einhverntímann í nánustu framtíð!
Svo ef þú situr á dollunni núna og vantar akkúrat skeinipappír þá tough luck!!

Áhugasamir hafi sambandi við stelpuna í halldob@hi.is

Stelpan