Íslensk umferðarmenning
Á heildina litið ættu Íslendingar ekki að hafa leyfi til að keyra!
Punktur!
Nú er ég ekki að pirra mig á gömlu körlunum með hattana eða strætóbílstjórum - eins og klassískt er! Nei, fólk sem er að tala í símann!!!
Það er mér með öllu óskiljanlegt hvernig fólk getur fengið það út að ef það er að tala í símann þá sé öruggast að keyra hægar!!!
Þá er ég ekki að tala um fólk sem er að keyra á litlu hverfisgötunum! Nei, ég er að tala um fólkið sem er að keyra Sæbrautina eða Miklubrautina, er að tala í símann og lítur á það sem "öruggasta kostinn" að keyra á 30!!!
It blows my mind!!!
Nú er ég ekkert að pirra mig á þessu bara vegna þess að ég lenti í þessu áðan!
Ég er að pirra mig á þessu vegna þess að ég lendi á eftir svona vitleysingum allavega einu sinni í viku! Ég lenti meira að segja í því einu sinni að þeir voru tveir, hlið við hlið, að keyra Sæbrautina á 30!
Og svo, punkturinn yfir i-ið! Þessir vitleysingar eru að keyra Sæbrautina á 30 af því það er svo svakalega öruggt, ákveða svo að beygja inn í hverfið og stoppa!!! Bara stoppa á miðri götunni og halda áfram að tala í símann!!! Þeir gera sér bara enga grein fyrir því að þótt þeir séu að tala í símann þá stoppar heimurinn í kringum þá ekki!!!
Þetta er heldur ekkert tilfallandi - ég er búin að lenda í nákvæmlega þessu þrisvar sinnum upp á síðkastið!!!
Og vitiði hvað annað?!
Það er alltaf talað um að kvenmenn séu svo lélegir bílstjórar jarí jarí jarí - hver einn og einasti einstaklingur sem ég hef lent í með þetta símaævintýri er karlmaður!!!
Karlmenn GETA bara ekki gert tvo hluti í einu - as simple as that!!!
Stelpan

<< Home