Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, janúar 14, 2005

Tíðindaleysi umfram allt!

Já þetta ár ætlar svo sannarlega að byrja rólega! Skólinn er byrjaður aftur og lífið svona nokkurnveginn komið í sinn vanagang eftir hátíðirnar - en þó einkennast dagarnir af algjörlega engu!!!

Þar sem ég hef ekkert merkilegt og spennandi að segja þá ætla ég bara að segja ykkur frá einhverju sem mér þykir dáldið merkilegt og spennandi!
Ég fór í 2. fyrirlesturinn í almennum stjarnvísindum í dag og mér er sama hvað fólki finnst - mér finnst það æði!
Kennarinn er eins og kennarar eiga að vera - finnst þetta æðislega spennandi og skemmtilegt og er alveg nett æstur! Hann byrjaði einmitt tímann á því að segja okkur (og sýna) frá lendingu geimfarsins Huygens á Títan (stærsta tungli Satúrnusar) en í kringum hádegi að íslenskum tíma lenti Huygens á Títan!
Vísindamenn út um víða veröld eru alveg að missa sig af spenningi um hvað á eftir að koma í ljós!!!
Ég persónulega er ekki í neinum missingi en þetta er nú samt svoldið spennó - allavega fyrir lúða eins og mig!!

Fólk kann að spyrja sig hvað sé svona merkilegt við þetta?!
Jú, sjáiði til: vísindamenn vita lítið sem ekkert um það hvernig umhorfs er á Títan, hvernig andrúmsloftið er, úr hverju yfirborðið er o.þ.h.
Og það er ekki eins og það sé bara pís of keik að rúntast þarna úteftir og tékka á því - geimfarið er búið að vera rúm 7 ár á leiðinni!!!

Þannig að allir sannir geimlúðar ættu ekki að láta þetta framhjá sér fara! Sé einhver slíkur að lesa þetta ætti sá hinn sami að skoða þetta.

Geim-stelpan