Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

fimmtudagur, janúar 06, 2005

Vitleysan

... sem maður kemur sér í!

Ég fór á sundæfingu í gær í nýju lauginni!
Halelúja, hún er æði! Hún var svo köld að það var ekki nokkur leið að stoppa lengur en 10-15 sek! Þannig á það að vera!!!

Allavega, vitleysan sem ég kom mér í er sú að ég er að fara að keppa á sunnudaginn!!!
Ójá, ég er ekki búin að keppa í rúm 5 ár!!!
Í tilefni þess ákvað ég að taka nokkrar stungur - gá hvort ég kynni þetta ennþá og holy crap! Pallurinn sem maður stingur sér af er uppi á öðrum palli þannig að þegar ég var loksins búin að klifra alla leið upp og leit niður þá voru krakkarnir sem voru að synda í lauginni orðin töluvert minni vegna fjarlægðar!!! Fyrir manneskju sem verður lofthrædd í rólu er þetta ekki gott mál!!! Ég er ekki að grínast, ég fékk nettan svima!
En mér tókst að sjálfsögðu að stinga mér - kannski ekki bestu stungur í heimi en þær duga!!!
Þannig að á sunnudaginn er ég að fara að keppa - x2!!!
Það er óhætt að segja að þetta verði eitthvað skrautlegt!

Stelpan