Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

fimmtudagur, febrúar 17, 2005

Afsakið, vitlaust númer!

Ekki veit ég hvað það er við símanúmerið mitt sem gerir það svona kjörið til að hringja í - en fólk út um allan bæ virðist einhverra hluta vegna hringja sífellt í það að leita að einhverju fólki sem er bara alls ekki og engan veginn í þessu númeri!

Sem dæmi er á síðustu 2 dögum búið að hringja 3x í mig og spurja um einhvern allt annan:
"Ó, bíddu gleymdi Gunni símanum sínum?!" - Nei!!!
"Ha, hver er þetta?!?!" - Hver er ég? Hver í fjandanum ert þú?!
"Já, er þetta hjá rexn (fyrirtæki sem ég man bara ekki hvað heitir)?!" - NEI!!!

Svo beint eftir þjóðhátíð í sumar kom furðulegt tímabil - þá var fólk að hringja í mig dag og nótt að leita að Hákoni!!! Ég spurði einhvern á endanum hver það væri og þá var þetta einhver gaur frá Eyjum! Ég fæ ómögulega skilið af hverju fólk hélt að númerið mitt væri númerið hans!

Svo sumarið þar áður - það var ennþá verra!
Einn daginn fór fólk að hringja like crazy og spurja mig hvort ég sæi ekki um að bóka ferðir á Lagarfljótið!!!
Do I look like a person who would do that?!
Og þetta voru ekkert 2 eða 3 símtöl - við erum að tala um tugi símtala sem bárust á mis-kristilegum tímum! Ein hringdi t.d. eeeeeldsnemma á sunnudagsmorgni þegar ég var nýskriðin heim af djamminu - ég skellti nú bara á hana.
Það endaði með því að ég settist niður og hringdi austureftir og tókst á endanum og finna númerið hjá karlinum sem sér um þessar Lagarfljótsferðir og þá kom í ljós að hann hefði verið í einhverjum bækling og sett númerið mitt sem sitt númer!!!
"Þetta var nú bara smá prentvilla!"
Óvinsældir!!!

Næst þegar einhver hringir og segist hafa hringt í vitlaust númer segi ég:
"Nei, þetta er alveg rétt númer - en ÞÚ ert vitlaus!!!"

Og hafiði það!

Stelpan