Draumfarir
Upp á síðkastið hef ég varla haft tíma til þess að sofa því mig hefur dreymt svo mikið! Svo vakna ég á morgnana stútfull af einhverju bölvuðu rugli sem mig hefur verið að dreyma og á oft mjög erfitt með að hrista það af mér!
Í morgun var engin undantekning. Þegar ég vaknaði sat í mér einn af mörgum draumum næturinnar.
Ég var að vinna í einhverskonar skóla/námskeiði eitthvað fyrir krakka - málið var að yfirmaðurinn var einhverskonar bófi svo „við“ vorum að plotta eitthvað ógurlegt til að „bjarga“ krökkunum. Bara svona klassískt draumabull.
Það sem mér þótti áhugaverðast við drauminn að þrátt fyrir bófann og tilraunir okkar til að bjarga krökkunum hafði ég lang mestar áhyggjur af því í hvaða fötum ég ætti að vera!
Og niðurstaðan var sú, this kills me, að ég ákvað að vera í dökkbláum gallabuxum sem voru aaaalveg með gulrótarsniði. Svo fór ég í einhvern hvítan blúndu-ógeðs-bol sem var sniðlaus með öllu, eitthvað rautt vesti yfir og svo hvítan blúndu-ógeðs-jakka sem var í stíl við bolinn utanyfir. Svo leit ég á sjálfa mig í speglinum og var bara nokkuð ánægð!!!
Ég held að þetta sé ástæaðan fyrir því að þessi draumur sat svona svakalega í mér - mér tekst ekki að jafna mig á múnderingunni!
En ég man ekkert hvernig fór með krakkana og að bjarga þeim frá bófanum!
Ruglið!!!
Stelpan

<< Home