Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

sunnudagur, febrúar 20, 2005

Sardínur í dós

... lykta mjög illa eins og allir meðlimir 6-X fengu að kenna á en það var ekki boðskapur sögunnar.

Ég var að keppa á föstudaginn, enn á ný í nýju fínu lauginni.
Ég fór í upphitun og svona og ég get svo svarið það, það var svo pakkað í lauginni að í samanburði virtist betra að vera sardína í dós en sundmaður í lauginni!!
Jesús, Pétur, María og Jósep segi ég nú bara!!!

Allavega, ég keppti aftur í 50 bak og að þessu sinni voru skuldadagar síðan síðast þegar ég klessti á línuna!!! Mitt eina markmið var að klessa ekki á línuna!!!
Ok, ég synti, og var svo einbeitt að ég var ábyggilega rangeygð og viti menn - ég klessti ekki á línuna!
Ha, take that!!!
Mér tókst meira að segja að bæta mig síðan síðast - sem er kannski enginn sjokker miðað við áreksturinn sem ég lenti í þá! En ég var samt hálffúl að ég skyldi ekki bæta mig meira en skyldi vegna þess að ég einbeitti mér svo mikið að því að klessa ekki á að ég náði ekki að einbeita mér nóg að sundinu sjálfu!
Það er ekkert nógu gott fyrir mig!
En Helga Dröfn átti kollgátuna - ég verð að passa mig að ofmetnast ekki! Ég bætti mig OG klessti ekki á línuna svo það verður bara að teljast nokkuð gott!!!

Svo, to sum up - það gekk bara nokkuð vel!

Stelpan