Talandi um old school
Var í fuglafræði í dag og kennarinn var að tala um ratvísi og svona.
-það er skemmst frá því að segja að hann er alveg af gamla skólanum-
Svo spurði hann okkur hvort við værum ekki örugglega öll búin að taka siglingafræði!
Það kom alveg þögn í stofunni og allir litu hálf vandræðalegir hvor á annan.
Siglingafræði?! Uhh, nei! Ættum við að hafa tekið siglingafræði?!
Er það yfir höfuð kennt spyr ég nú bara?!
Allavega, hann hélt áfram - þrátt fyrir að enginn hefði tekið siglingafræði - "já þið kannist nú öll við það þegar þið lítið upp og sjáið þotu á leið sinni til Tókýó!"
Aftur þögn í stofunni.
Tókýó?!?!?!
Ég er nú kannski ekki aaaaalveg svona vel að mér í landafræði og áttum að ég geti séð hvaða flugvélar stefna á Tókýó og hverjar ekki!
Kannski er það vegna þess að ég er ekki búin að taka siglingafræði?!
Stelpan

<< Home