Vel við hæfi
Ég var á æfingu í gær og í lauginni var heill haugur af gelgjum - svokallað gelgjufestival!
Með þeim í lauginni og á bakkanum voru nokkrir fullorðnir einstaklingar svo við vorum að velta því fyrir okkur hvort þetta væri skólaferðalag eða hvað.
Allavega, þegar líður á æfinguna hjá okkur fara krakkarnir og setja tónlist á fóninn, tónlist sem glumdi um alla laugina og var svo hátt spiluð að við þurftum að kalla á milli brauta. Það kom okkur svoldið á óvart að tónlistin sem verið var að spila var „gömul“, þ.e.a.s. þetta var tónlist sem við kunnum bara ágætlega við.
Svo spurðum við Vadim hvort hann vissi hvað væri í gangi og hann sagði okkur að þetta væri einhverskonar fermingarfræðslu-dæmi, og að presturinn væri meira að segja með þeim ofan í.
Á meðan hann var að segja okkur þetta með prestinn og fermingarbörnin ómaði í höllinni „I'm on a highway to hell!!!“
Okkur þótti það mjög viðeigandi og með eindæmum kómískt!
Stelpan

<< Home