Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, mars 28, 2005

Gleðikona í háska!!

Já gleðilega páska!

Þar sem ég á 12 ára systur sem berst fyrir öllum réttu málstöðunum þá fékk ég páskaegg nr. 6 frá Nóa.
Það var stórt!
Ég opnaði það á hádegi í gær, var étandi það allan daginn - en er samt ekki búin með nema í mesta lagi þriðjung af því!
Svo, í dag get ég haldið áfram að borða páskaeggið mitt! Ég er glöð!
Segiði svo að það borgi sig ekki að eiga lítil systkini sem berjast fyrir málstaðinn!!!

Síðan vil ég nýta tækifærið og óska Rúnari ninjameistara til hamingju með daginn en hann er *ritskoðað* ára í dag!

Stelpan