Lykkjufall, falleg augu, viskí í nefið og geðveikt partý!
Ég fór semsagt út á laugardaginn með henni Clöru skvísu.
Okkar leið lá á niður á Hressó - en ekki hvað!
Þar hittum við fyrir hana Nínu þar sem hún stóð fyrir því að láta alla taka viskí í nefið! Ekki gátum við verið minni manneskjur svo við létum til leiðast! Kannski ekki þægilegast í heiminum en nefið hreinsaðist svo sannarlega!!!
Nú, svo sitjum við þarna í góðum fíling og þá pikkar í mig einhver stelpa sem situr á borðinu við hliðina á mér - henni fannst hún bara knúin til að tilkynna mér að ég væri með alveg einstaklega falleg augu!!!
Hún lét það fylgja sögunni að hún væri ekki lesbísk heldur væri í raun trúlofuð (ég fékk að sjá hringinn og allt) - henni fannst hún bara verða að segja mér þetta!!!
Ég þakkaði bara pent fyrir mig - vissi ekki alveg hvað ég átti að segja. En hún snéri sér svo bara aftur að sínu borði - and that was it!
Mjög furðulegt en engu að síður mjög ánægjulegt!!!
Nú, síðan koma einhverjir vinir hennar Clöru og setjast hjá okkur.
Einn þeirra var með mér í grunnskóla svo ég fór aðeins að spjalla við hann.
Eftir þónokkrar samræður fer hann að tala um það að ég kynni sko að halda partý!
Ég svona, skildi ekki alveg hvað hann var að meina þar sem ég held hann hafi aldrei komið í partý til mín.
„Jú, ég var í partýinu þínu áðan - í Garðabænum!! Geðveikt partý maður!!!"
???
Þá var semsagt eitthvað geðveikt partý í Garðabænum á laugardaginn og stelpan sem var að halda það var víst bara tvífari minn! Hann fékk meira að segja second opinion hjá vini sínum (sem átti víst að þekkja þessa stelpu svoldið vel) og hann hélt líka að ég væri hún!!
Það endaði svo með því að þeir ætluðu sko að láta alla vita hvað ég héldi geðveik partý!!!
Nújæja, síðan svolitlu seinna þá sit ég við eitt borðið (not a shocker) og krosslegg fæturna (again, not a shocker). Mér tókst að reka hnéð í járnið undir borðinu - það var ekki einu sinni vont - en þegar ég svo stóð upp!!! Men ómen!!! Hafi nokkurntímann verið lykkjufall - þá var þetta það!!! Það var alveg risagat á hnénu og svo var það búið að leiða bæði upp og niður svo u.þ.b. þriðjungur af öllum sokknum var lykkufall!!!
Þetta var alveg með ólíkindum!!!
Svo, to sum up: Brjálað partý, viskí í nefið og lykkjufall dauðans!
Getur ekki klikkað!!!
Svo ætla ég að klára söguna þar sem ég byrjaði - á henni Clöru!
Clara er boobysister, skvísa og daðrari með meiru - og gott betur en það - hún er afmælisbarn dagsins!
Til hamingju með daginn Clara mín!
Stelpan

<< Home