Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, mars 18, 2005

Pirr!!!

Já, ég er ógeðslega pirruð - og aldrei þessu vant hef ég fullan rétt á því!!!

Ok, ritgerðin sem ég er búin að vera að gera síðan bara - forever!
Þetta er semsagt verkefni í stjörnufræði, maður á að gera ritgerð og halda svo fyrirlestur úr ritgerðinni.
Flott mál, sounds simple enough!
Þegar þetta byrjaði allt saman þá passaði kennarinn upp á það að allir skráðu niður það sem þeir ætluðu að fjalla um svo það yrðu nú engir árekstrar - enda væri það glatað!
Nú, ég held að ég hafi svei mér þá verið fyrsta manneskjan sem sagði honum hvað ég ætlaði að fjalla um, ég ætlaði að fjalla um Kuiperbeltið. Flott mál, honum leist vel á það.

Nú, svo er ég búin að sitja sveitt við tölvuna að finna nothæfar heimildir og believe me - það er ekki til mikið af þeim! Maður verður alveg að kreista allt sem maður getur út úr þeim góðu sem maður finnur!
Svo er ég búin að vera að sjóða saman ritgerðina og nokkurskonar drög að fyrirlestrinum - hvað ég ætla að fjalla um og svona.
Það er búinn að fara ómældur tími í þetta!!!

Allavega, svo er tími í dag og það voru einhverjir að halda sína fyrirlestra.
Meðal þeirra sem ætluðu að flytja var einhver gaur sem er ekki búinn að mæta síðan bara í fyrsta tímanum!
Það kemur að honum - hann fer upp á töflu - og hann heldur minn fyrirlestur!!!

!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég horfði bara á, glæru eftir glæru, hvernig maðurinn fjallaði um, í stórum dráttum, nákvæmlega það sama og ég ætlaði mér að gera!!!
Ef eitthvað er þá var mitt aðeins ítarlegra.

Þegar hann var búinn þá snéri ég mér að kennaranum og sagði honum að ég þyrfti ekkert að halda minn fyrirlestur - það væri búið að því!
"Nei, nei, það er nóg eftir!"
Nóg eftir?!?!?!?!?!
NÓG EFTIR?!?!?!?!
Það kann að vera að innanbúðarstarfsmenn NASA eigi nóg eftir - en ég hef ekki aðgang að sama efni og þeir!!! Það er ekkert nóg eftir!!! Það eina sem er eftir eru aðferðir við að reikna út braut einhverra pínulítilla sneina einhversstaðar lengst útí geimi - MINN FYRIRLESTUR Á EKKI AÐ VERA UM ÞAÐ!!!
"Nú þá geturðu farið á síðuna nine planets" - búin að því!
"Þú getur farið á síðuna hans Jewitts" - búin að því!
"Þú getur leitað á hvar.is" - búin að því!
"Þú getur reynt google" - BÚIN AÐ ÞVÍ!!!
Ég er búin að öllu sem mögulega er hægt að gera!!! Það ER ekkert meira í boði!!!

Þannig að - frábært!!!
Ég er búin að vera mjög dugleg að vinna í þessu svo ég þurfi ekki að gera það í páskafríinu - því ég þarf að gera aðra, ekki síður mikilvæga, ritgerð um páskana! En nei, nú þarf ég að tja, u.þ.b. gera allt upp á nýtt og breyta þessu þannig að þetta verði ekki sami fyrirlesturinn tvisvar!
Ég er ekki einu sinni viss um að það sé hægt!!!

Ég er ÓGEÐSLEGA PIRRUÐ!!!

Stelpan