Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

laugardagur, mars 12, 2005

Ritstífla

Ég, eins og margir aðrir stórrithöfundar, þjáist af ritstíflu!

Ég er að gera ritgerðina mína í stjörnufræði um Kuipersbeltið - og það bara gerist ekki neitt!
Ég er með fyrir framan mig einhverjar 8 stórar greinar og óteljandi heimasíður og vefslóðir um efnið - en samt gerist ekkert!
Vandamálið felst aðallega í því að ég er búin að lesa þessar greinar og heimasíður og allt klabbið - en þeim virðist ekkert koma saman um hvað sé rétt - og ekki veit ég það!!
Svo ég er að gera mitt besta til að samræma allar þessar heimildir - reyna að gera það á sem réttmætastan hátt - og það gengur bara ekki neitt!!!

Ekki nóg með það að ég þurfi að skrifa einhverjar 15 bls um þetta heldur þarf ég að halda fyrirlestur - á föstudaginn!!!
Miðað við það hvernig gengur akkúrat núna er ég ekki að sjá það gerast!
Ég ætla samt að gera heiðarlega tilraun til að halda þessu áfram!

Stelpan