Tjúttið
Váááá hvað það var gaman í gær!!!
Kvöldið byrjaði semsagt á því að ég fór út að borða með stelpunum í líffræðinni.
Árshátíð líffræðinema var nefninlega í gær og það var engin stemmning fyrir henni svo við ákváðum bara að fara út að borða í staðinn (það voru 30 sem fóru á árshátíðina, við vorum 17 úti að borða!)
Við fórum á Grillhúsið og vorum, eins og áður sagði, 17 saman - en sátum við borð fyrir ca 10 manns!!!
Já eins og hann Garðar sagði einu sinni - sátt sitja þröngir!!!
Síðan fór ég í innflutningspartý til Hrefnu og Ingvars og þar var fín stemmning - þangað til Rúnar og co komu en þá varð brjáluð stemmning!
Rúnar kom með einhvern disk af vondum lögum sem hann var búinn að safna saman og meðal annars var þar Queen-syrpa - á japönsku!!!
Af öllu því sem ég hef nokkurn tímann heyrt á allri minni ævi þá var þetta það lang fyndnasta!!!
Scheisegruppe!!!
Í fyrstu atrennu hló ég eins og vitleysingur alla syrpuna í gegn!
Í annarri atrennu fóru strákarnir að "syngja með" og þá hló ég svo mikið að mér var illt!! Þeir komust nefninlega að því að það var hægt að syngja þessa syrpu easily ef maður sagði bara toyota, suzuki, pokemon og yu gi oh til skiptis!!!
Fáránlega fyndið!!!
Svo var haldið á Gaukinn þar sem Jónsi og co voru að skemmta landanum.
Að sjálfsögðu stuð þar!
Og svo maður – díses kræst – það eru ekki bara forsetar og world leaders sem eru sýnd banatilræði! Ónei, mér var sko sýnt banatilræði í gær!!! Og það var weird!
Við vorum semsagt að dansa og það var stelpa fyrir aftan mig sem var brjálað að nudda rassinum í mig og það var ekki svona “reyna að ýta mér í burtu” heldur var þetta bara káf! Það er skemmst frá því að segja að ég var bara ekkert að fíla það, og fannst þetta bara ótrúlega óþægilegt.
Það endaði með því að ég snéri mér við og bað hana vinsamlegast að hætta þessu, ég væri ekki að fíla þetta káf og mér þætti það bara óþægilegt!
- Já en ég....
Nei, viltu bara hætta þessu!!!
Ég snéri mér aftur við og hélt áfram að dansa og pían hélt áfram að káfa á mér!
Eftir smá snéri ég mér aftur við og bað hana að hætta þessu!!!
Svo komu nokkur sekúndubrot þar sem ég missti af því sem gerðist – svo áður en ég vissi af hélt pían mér hálstaki á dansgólfinu og ætlaði bara að kyrkja mig!!!
Vá hvað mér var brugðið! Ég held að öllum þarna hafi verið brugðið!! Það kom meira að segja svipur á Jónsa á sviðinu!
Mér tókst nú samt að losa mig auðveldlega og Nína og vinkonur hennar komu inn á milli – þær fóru svo með hana í burtu!
Jeminn þetta var svo súrrealískt!!!
En jæja, við héldum bara áfram að tjútta eins og okkur einum er lagið og það var stuð langt fram á morgun!!
En þrátt fyrir að það hafi ekki verið ælt þá verður að flokka þetta djamm sem alvöru þar sem það var bæði Queen á japönsku OG banatilræði!
Það verður ekki mikið meira alvöru en það!!!
Stelpan

<< Home