Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, mars 28, 2005

Viltu sígó?!

Nú er ég manneskja sem reyki ekki, hef aldrei reykt og mun aldrei reykja!
Þess vegna þótti mér það dálítið merkilegt þegar ég uppgötvaði að ég á:
  • Fullan Winston pakka
  • Næstum því fullan Marlboro pakka
  • Næstum því fullan Kent pakka
  • 3 Camel sígarettur í pakka
Ég get ekki alveg útskýrt þetta!

Stelpan