Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, apríl 18, 2005

Annar draumur

Ég veit ekki alveg hvað er í gangi hérna!
Mig dreymdi annan stórfurðulegan draum - og þessi var sko ekki minna ofbeldisfullur en sá fyrri.

Við Nína systir komumst semsagt einhvernveginn á snoðir um eitthvað leynifélag svo við brutumst inn í höfuðstöðvarnar sem voru inní einhverju fjalli!
Þar hittum við fyrir höfuðpaurinn og létum hann sko heyra að við vissum allt um þetta félag hans - og eitthvað bla.
Við hefðum kannski átt að fara aðeins varlega í þessar yfirlýsingar því hann sprautaði okkur með einhverju svefnlyfi svo við bara duttum útaf.
Svo vakna ég - og þetta er furðulegi parturinn - en þá stóðum við Nína yfir líkömunum okkar - það var semsagt eins og við værum komnar úr líkamanum - en líkamarnir voru ekki dánir, bara búið að svæfa þá. Allavega, líkamarnir okkar voru í plastpokum í einhverri kerru ásamt þriðja líkamanum - og ég horfði á andlitin og þetta vorum ég og Nína, bara geðveikt fölar - mjög weird!
Svo kemur höfuðpaurinn aftur í hvítum pollagalla því hann var að fara að búta líkamana á okkur niður í smátt og hann vildi ekki verða allur útí blóði! Hann - sem betur fer - byrjaði á hinum líkamanum sem var í kerrunni og okkur Nínu leist nú ekki á blikuna svo við ákváðum að reyna að bjarga líkömunum okkar.
Upp hófst svo mikill eltingarleikur milli okkar - haldandi á líkömunum - og varðanna í leynifélaginu.
Það endaði svo með því að okkur tókst að sleppa og létum okkur rúlla niður einhverja hlíð þar sem við földum okkur.

Ég átta mig ekki alveg á því af hverju mig er farið að dreyma svona blóðuga drauma - það er greinilega eitthvað að gefa sig í toppstykkinu!!!

Stelpan