Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, apríl 05, 2005

Beint í augað!

Já ég verð nú að segja það að ég er ekki alveg nógu sátt við veðráttuna þessa dagana.

Sem dæmi fór ég niður í bæ áðan að kaupa afmælisgjöf fyrir pabba (get sagt það hreint út því ég VEIT að hann er ekki að lesa).
Það var þessi líka brjálaða snjókoma í gangi meðan á verslun stóð og það voru sko engin smá snjókorn - ætli þau hafi ekki verið á stærð við borðtenniskúlur.
Allavega, ég er að labba í bílinn og sé svona útundan mér að það stefnir á mig þetta risastóra ofsasnjókorn - það var grínlaust á stærð við tennisbolta! Og viti menn - ég fékk það beint í augað!

Scheise hvað það var óþægilegt - þetta var eins og að fá snjóbolta í augað! Eins gott að ég var með vatnsheldan maskara - annars hefði hann lekið niðrum allt!

Ég er ekki alveg nógu sátt við þetta.

Sem dæmi sá ég mig knúna að fara og kaupa mér sumarskó í gær - svona vegna þess að ég á enga skó (hóst). Að sama skapi keypti ég mér hvítar buxur í tilefni þess að það fer alveg næstum því bráðum að koma sumar.
Og hvað?! Svo er bara endalaus snjókoma svo ég neyðist til að vera bara í mínum svörtu buxum og skóm - einhverju sem verður ekki sjúklega skítugt í snjónum! Hnuss!

Ég kýs að kenna Sigga Stormi alfarið um þetta!

Stelpan