Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, apríl 11, 2005

Draumur

Stundum dreymir mig drauma sem mig bara rámar í daginn eftir, stundum man ég drauminn allan og stundum dreymir mig eitthvað sem situr í mér allan næsta dag!

Í nótt dreymdi mig einmitt draum sem er búinn að sitja alveg þvílíkt í mér í dag!

Ég var semsagt í stríðinu - ég get ekki útskýrt nánar hvaða stríði eða hvar það átti sér stað.
Ég var í einhverri skemmu - ein - og það var verið að ráðast á skemmuna.
Þetta byrjaði bara á skothríð - það voru komin svona milljón göt í öll gler og veggi og mér tókst á einhvern furðulegan hátt að sleppa með því að fela mig bak við einhverjar steinsúlur.
Síðan kom drífa af handsprengjum sem - sem betur fer - hittu mig ekki!
Svo komu flugskeytin - einhverjar ca meters langar sprengur.
Mér tókst að sleppa undan nokkrum en svo kom eitt - beint á mig - og ég horfði upp og sá það koma beinustu leið niður á mig svo ég rúllaði mér eitthvað í burtu og tókst næstum því alveg að sleppa, ég fékk samt einhver sár aftan á hægri lærið og kálfann.
Ok, gott mál. Svo kom ég heim úr stríðinu og fór að finna Nínu niðrá skrifstofu því ég þurfti að fara niðrá slysó að láta sauma sárin mín, ég var öll blóðug og skítug og í rifnum fötum og svona.
En nei, Nína gat ekki lánað mér bílinn, hún þurfti að nota hann og þar sem klukkan var bara hálf 1 þá var mamma ennþá í vinnunni og ég gat ekki fengið hennar bíl. Svo, það endaði með því að ég labbaði niðrá slysó og lét sauma mig.
Svo var ég alltaf að reyna að segja fólki hetjusögurnar mínar úr stríðinu og enginn hafði áhuga, mér tókst aldrei að klára söguna - ég var ekki sátt við það!
Draumnum lauk svo þegar vekjaraklukkan hringdi, þá var ég ennþá niðrá slysó að láta sauma mig saman!

Ég get svo svarið það. Yfirleitt get ég útskýrt vitleysuna sem mig dreymir - get tengt það við eitthvað sem hefur verið að gerast í mínu lífi - en ég get ekki á nokkurn hátt útskýrt þetta!

Og Nína, næst þegar þú þarft að fá bílinn lánaðan til að fara upp á slysó og sauma saman sárin þín úr stríðinu þá færðu sko ekki bílinn hjá mér!!!

Stelpan