Fréttaskot
Já, það er sko allt að gerast - í fréttum er það helst að Gummi frændi varð pabbi á föstudaginn! Fyrsta langafabarnið komið!!
Jey! Mér finnst það æði!
Innilega til til hamingju þið tvö!
Það fyndasta við þetta allt saman er að núna er mamma orðin ömmusystir - ekki lítið búið að hlægja að því! Svo eru litlu frændur mínir orðnir föðurbræður!
Aldurinn er alveg að hellast yfir mann!
Og talandi um háan aldur - ég var að átta mig á því að prófin hjá mér byrja eftir mánuð!
Þegar þeim er lokið tekur Tæland við og eftir það er útskriftin!
Útskrift úr háskóla gott fólk! Maður er að verða kominn með gráðu!
Scheise hvað maður er orðinn gamall!
Ég man þegar mér fannst krakkar í menntaskóla vera fullorðnari en allt! Ég man hvað mér fannst það crazy að Nína systir væri orðin 10 ára - mér fannst það gjeeeðveikt að vera svona gamall!!!
Nei nei, maður er að verða fræðingur! Mér finnst ég ætti að fara að sitja heima öll kvöld með einglyrni og hatt, reykjandi pípu og að lesa einhverja gamla, rykfallna bók!
Uss uss uss!
Stelpan

<< Home