Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

laugardagur, apríl 16, 2005

Lúdó

Nú er ég ekki manneskjan sem getur setið heilu dagana í tölvuleikjum - langt því frá!

Hins vegar datt ég niður á þennan snilldarleik á netinu - og ég fékk bara flashback dauðans frá því þegar ég var lítil að spila þetta!
Það er skemmst frá því að segja að ég missti mig alveg í leiknum áðan - rauður vann mig og ég varð brjáluð - ég SKAL vinna hann í næstu umferð!!!

Mikið vildi ég óska að einu áhyggjurnar í mínu lífi snérust um það hvort ég myndi vinna rauðan í lúdó!

Stelpan