Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, apríl 26, 2005

Orðið á götunni

Já það er rétt sem þið hafið heyrt - það eru að byrja próf!

Þetta þýðir (í mínu tilfelli) mikla inniveru, lestur og almenn leiðindi!

Fyrir ykkur hin sem ekki eruð í prófum þýðir það hins vegar mjög gott veður, því eins og við öll vitum gerði Siggi Stormur samning hér um árið við Kára kallinn um að ávallt skuli vera hlýtt, sólríkt, lyngt og almennt góðviðri þegar próf standa yfir í skólum landsins!
Þessum samningi fylgdi líka einhver klásúla sem Siggi las ekki nógu vel, þar var eitthvað talað um Verzlunarmannahelgina og rigningu - ég er ekki alveg búin að lesa þetta sjálf en mér finnst Siggi Stormur hafa náð frekar lélegum díl!

Allavega, svo framarlega sem þið viljið ekki heyra sögur um stofnvistfræði Mývatnsanda, niðurstöður næringarrannsókna, tegundagreiningu vorflugna o.þ.h. skuluð þið ekki búast við skemmtilegu bloggi á næstunni!

Stelpan