Starfsmaður mánaðarins
Við Nína Kristjáns ákváðum að fara í bíó í gær.
Smá tæknilegir örðugleikar urðu til þess að við vorum komnar upp í Háskólabíó kl. 10:30 - en myndin sem við ætluðum að sjá var bara alls ekki sýnd í Háskólabíói!
Svo við gripum á það ráð að biðja stelpuna í afgreiðslunni bara að benda okkur á einhverja góða mynd á kvikmyndahátíðinni. Hún mælti með mynd sem heitir Napoleon Dynamite svo við sögðum bara ok, og keyptum miða á hana.
Hvorug okkar hafði heyrt nokkuð um þessa mynd og við vorum báðar dáldið skeptískar og vissum að sjálfsögðu ekkert hverju mátti búast við!
Heyrðu, við förum inn í sal og myndin byrjar og það varð strax ljóst að þetta var engin mynd um Napóleon - dáldill léttir þar!
En um hvað var myndin þá? Jú, hún var um einhvern hálfþroskaheftan lúða dauðans í einhverjum útnára í Bandaríkjunum!
Og það sem þessi mynd var sjúklega fyndin!!!
Svampur Sveinsson er sko kominn með harða samkeppni!!!
Ég get ekki lýst því með orðum hvað við hlógum ógeðslega mikið yfir þessari mynd!!!
Allir þeir sem hafa vott af húmor í sér VERÐA að sjá þessa mynd!!! Hún er bara of fyndin til að missa af henni!!!
Svo niðurstaðan var sú að stelpan í afgreiðslunni er starfsmaður mánaðarins hjá Háskólabíó!
Stelpan

<< Home