1 próf búið!
Vá hvað ég var í erfiðu prófi áðan!!!
Ekki það að prófið sem slíkt hafi verið erfitt - nei nei - málið er bara það að eftir að maður tölvuvæddist kann maður ekki lengur að skrifa! Svo það að fara í 3 tíma próf þar sem maður skrifar án þess að stoppa er bara virkilega challenging!!!
Annars gekk bara ágætlega í þessu prófi. Hefði viljað að það hefði gengið aðeins betur, fannst mér ekki takast að koma allri vitneskjunni frá mér!
Síðan var eitt sem truflaði mig mikið.
Ég opnaði prófið og las fyrstu spurninguna. Ég skildi hana ekki. Ég las hana aftur, mjög varlega yfir. Ég hreinlega skildi ekki hvað kennarinn var að spurja um!!! Það var ekki að ég kynni ekki efnið, nei ég bara áttaði mig engan veginn á því hvað var verið að spurja um!
Nú ok, ég ákvað að láta þessa spurningu bara bíða þangað til kennarinn kæmi - þá gæti ég nú spurt hana en viti menn - kennarinn kom ekkert í prófið!!!
Mér fannst það dáldið hart!
Svo kom ég út úr prófinu og fór að spurja fólk út í 1. spurninguna og þá kom á daginn að það hafði enginn almennilega áttað sig á því hvað var verið að spurja um og allir voru að bíða eftir að kennarinn kæmi svo þeir gætu spurt!
Dáldið halló!
En allavega, þessum áfanga er lokið - það þarf eitthvað meiriháttar að koma upp á til að maður falli í þessu prófi svo nú einblínir maður bara á næsta próf!!!
Stelpan

<< Home