Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, maí 18, 2005

Helstu fréttir

... eru engar!

Helgin var tekin með fádæma leti og iðjuleysi!
Sjaldan hefur ein manneskja slappað jafn vel af (fyrir utan hörku djamm að sjálfsögðu)!!!

Nú, síðan síðustu þrjá dagana hef ég verið að labba.
Já, það var rétt - ég hef verið að labba!
Hvar hef ég verið að labba kann fólk að spyrja sig - það get ég sagt ykkur - alls staðar!!!

Ég er semsagt búin að vera í þessum sumarkúrsi í fuglafræði og við erum búin að vera frá 8 til 7 einhvers staðar á labbi - hvort sem það er uppi á heiði, inní skógi, útí mýri, útí hrauni - basically alls staðar þar sem fuglar halda sig!!!
Upp úr því er ég búin að hafa þessa fínu hálsbólgu (þrátt fyrir mikinn og góðan klæðnað), pínu sólbruna í fési og vott af harðsperrum!!!
Á móti kemur svo að ég er búin að sjá marga marga fína fugla og er búin að læra margt og mikið - flest eitthvað sem þið hin hafið lítinn sem engan áhuga á!!!

Og að öðru - hafi einhverjum sem ég þekki tekist að missa af þeirri staðreynd að ég er að fara til Tælands þá skal ég segja ykkur það núna: Ég er að fara til Tælands!! Á laugardaginn!!!
Það er ekki laust við það að það sé komið nett stress í mann - mestmegnis þó stress yfir því sem ég þarf að taka með mér og því sem ég þarf ekki að taka með mér!!!

En jæja, að svo mæltu sé ég mér ekki annað fært en að fara að stressa mig aðeins á þessum pakk-lista mínum!

Stelpan