Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, maí 20, 2005

Tæland - here I come!!!

Jæja, þá er komið að því - stelpan nánast búin að pakka og reiðubúin að fara til Tælandsins!!!

Það er merkilegt frá því að segja að taskan mín með öllum farangrinum + auka ferðatösku vegur minna en farangurinn minn á Þjóðhátíð hér um árið!!!
Svona er maður farinn að vera duglegur að takmarka sig!!!

En að því sem brennur á allra vörum - júróvísjon!
Ég verð nú bara að vera hreinskilin - ég er hálf glöð að við komumst ekki áfram!
Málið er nefninlega það að akkúrat á meðan Eurovision er í gangi verð ég í flugvél (11 tíma flug by the way) á leið minni til Tælands - og þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég var búin að svekkja mig ógeðslega mikið á því að missa af Eurovision!!!
En - nú þarf ég engar áhyggjur að hafa því við komumst ekki áfram!!!
Hversu fyndið var þetta samt - við sátum nokkur heima hjá Nínu í gær að horfa á keppnina og það var ekki efi í okkar hjarta um það að við kæmumst áfram - það voru svo mörg lög sem voru svo vond!
Þegar kynnarnir voru svo að lesa upp úrslitin og það voru ca 3 umslög eftir - then it dawned on us - við komumst ekkert áfram!!!
Okkur fannst þetta samt bara fyndið - sem það og er!

Nóg um það - ég er að fara til Tælands - don't hold your breath í biðinni eftir næsta bloggi þar sem takmarkað magn netkaffihúsa er í frumskógum Tælands (hef ég heyrt) - þó aldrei að vita hvað maður finnur dýpst í frumskóginum!!!

Wish me luck!!!

Stelpan