Allt að gerast!
Já nú loksins eru hjólin farin að snúast í vinnunni!!!
Ég er semsagt að gera verkefni uppí lífeðlisfræðistofnun háskólans og þar sem ég er að fara að pína fólk höfum við þurft að sækja um alls konar leyfi og vesen til að fá að gera verkefnið.
Það var búinn að fara dáldill tími í að útbúa umsóknina til Vísindasiðanefndar en þeir ráða því endanlega hvort við fáum að gera verkefnið eða ekki.
Svo var haldinn fundur á mánudaginn - þetta var tekið fyrir - og samþykkt án athugasemda (og hún sagði mér konan uppi í Vísindasiðanefnd að það væri nú ekki oft sem það gerðist!!!)
Þannig að - ég er loksins komin með leyfi til að gera eitthvað - er orðin hundleið á að hanga bara og lesa mér til um verkefnið - mig langar að fara að framkvæma það!!!
Framkvæmdir hófust svo í dag þegar ég píndi hana Dagbjörtu mína til að koma og vera tilraunadýr!
Hún er þannig séð ekki partur af verkefninu - ég verð bara að fá einhverja vini og kunningja til að koma svo ég geti æft mig fyrir verkefnið sjálft!!!
Og já, ég hafði hugsað mér að pína einhverja fleiri!!!
En Dagbjört stóð sig eins og hetja og á skilið mikið þakklæti fyrir fórnfýsina!!! Thank you!!!
Annars er ekki margt að frétta annað en það að um helgina verður farið á færeyska daga í Ólafsvík!
Vúhú - það verður ýkt stuð!!! Og jafnvel þótt það verði ekki stuð - þá búum við það bara til, við höfum mikla reynslu á því sviði!!!
Svo ef þið ætlið út úr bænum um helgina þá vitiði hvert á að fara - Ólafsvík er málið!
Sjáumst þar!!!
Stelpan

<< Home