Framkvæmdir
Mikið svakalega er ég orðin þreytt á þessum helv... götuframkvæmdum sem eru í gangi alls staðar um bæinn!!!
Ég var aðeins á ferðinni áðan og lenti 4 sinnum í því að skyndilega var gatan bara lokuð! Ekkert verið að láta mann vita fyrirfram! Svo er manni skipað að fara einhverja allt aðra leið sem hentar manni bara alls ekki neitt!!! Hins vegar - hefðu verið einhverja merkingar þess eðlis að gatan væri lokuð hefði maður getað beygt af leið tímanlega en nei, það er of mikil fyrirhöfn fyrir þessa blessuðu verkamenn!!!
Þetta er svo sannarlega ekki í fyrsta skipti sem ég lendi í þessu!
Um daginn var ég að sækja Nínu systir heim til hennar og við vorum að fara að hendast eitthvað niður í bæ.
Fyrsta leiðin sem ég fór var lokuð svo ég snéri við.
Önnur leiðin var lokuð - ég snéri við.
Þriðja leiðin var líka lokuð svo ég þurfti að koma mér aðra leið í burtu - hún var líka lokuð!
Það endaði með því að ég þurfti að fara á móti einstefnu - koma mér í burtu og fara einhverja fáránlega leið bara til þess eins að komast nokkurnveginn í rétta átt!!!
Óþolandi!
Stelpan

<< Home