Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, júní 20, 2005

Helgar-report

Jæja, þá er þessari líka fínu helgi lokið!

Það þarf vart að taka það fram að maður fór niður í bæ á 17. júní í rjómablíðunni. Það var heljarinnar stuð - kandíflos og læti.
Svo um kvöldið fórum við markvisst í leiðangur í leit að gelgjum með bakpoka á fylleríi!
Það vantaði sko ekki gelgjurnar í bænum og okkur tókst að finna nokkra hópa sem voru á alveg fljúgandi fylleríi - það var alveg ferlega fyndið - stelpurnar voru alveg á öðrum bjór og byrjaðar að slaga og faðma hvor aðra og gráta og svona!
Ahhh, good times, good times!

Á laugardaginn (eftir sólbað að sjálfsögðu) var svo haldið í grillveislu til Clöru skvísu og mikið hrikalega var það vel heppnuð grillveisla!
Allir áttu að mæta með eitthvað á sameiginlegt hlaðborð og það var alveg merkilegt hvað allt var gott! Síðan var veðrið náttúrulega bara geggjað svo við sátum bara úti - með gítar - og sungum og átum og skemmtum okkur!
Svo eins og oft vill vera endaði það þannig að sumir urðu drukknari en aðrir!!!
Nefnum engin nöfn!!!
En það gleður mig þó að segja að í þetta skipti flokkaðist ég svo sannarlega sem aðrir!!!

Í gærkvöldi fór ég svo í bíó með los Ninos á Batman begins!
Ok, ég er búin að lesa marga dóma - bæði hjá gagnrýnendum og almenningi sem hefur séð hana og alls staðar er verið að lofsama þessa mynd og segja hvað hún sé frábær!!
Mér fannst hún bara ekkert frábær!!! Mér fannst hún eiginlega bara hundleiðinleg!
Fyrri hálfleikur var ekkert nema killer! Það gerðist ekki neitt og mér fannst einhvernveginn vanta allan Batman-mynda-fíling í þetta. Ég semsagt dottaði tvisvar en tókst svo að halda mér vakandi með því að einbeita mér að því hvað ég ætlaði að kaupa mér að éta í hlénu!
Nú seinni hálfleikur - vissulega ekki nærri því eins leiðinlegur og fyrri hálfleikur en samt ekkert til að hrópa húrra fyrir!
Á heildina litið fannst mér söguþráðurinn vægast sagt þunnur - og plottið hjá vonda gaurnum sömuleiðis! Batman sjálfur var svosem allt í lagi en hann var svo mikið að breyta röddinni þegar hann var kominn í búninginn að það eiginlega skemmdi fyrir honum! Síðan fannst mér þessi mynd bara alls ekki í anda Batman - þar sem allt er ótrúlega óraunverulegt, hvort sem það er Gotham, vondi gaurinn eða hvað! Nei, núna fannst mér eins verið væri að láta þetta líta út eins og það væri real - glaaaaatað!
Falldómur að mínu mati - ekki spurning!

En að öðru - maður er bara að fara að útskrifast næsta laugardag!
Can you believe it?!
Nú eru aðeins tæpir 6 dagar þangað til ég verð formlega Halldóra Brynjólfsdóttir líffræðingur!
Díses kræst!
Ég hugsa að ég verði nú ekki með neina sérstaka útskriftarveislu per se en aldrei að vita nema maður fái sér einn kaldan til að fagna áfanganum - ég held það sé það eina vitlega í stöðunni!!!

Stelpan