Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

fimmtudagur, júní 16, 2005

Hetja

Guð ég er svo dugleg!
Ég gerðist svo fræg að fara á línuskauta í gær - í fyrsta skipti á ævinni!
Það var svoldið skrautlegt.

Nína systir var nefninlega að kaupa sér nýjan síma og þá bauðst henni að kaupa þessa fínu símalínuskauta - ójá - símalínuskauta á mjög sanngjörnu verði. Við ákváðum að kaupa eitt kvikindi fyrir Unni litlu dekurrófu. Við föttuðum svo eftir á að skautarnir eru það stórir að þeir passa á okkur allar - svo nú deilum við systurnar símalínuskautum!
Skemmtilegt það!

Allavega, svo var svo gott veður í gærkvöldi að ég bara varð að fara út og gera eitthvað og línuskautarnir voru kjörin afsökun!
Ég fór niður í Laugardal með símahlífarnar á öllum mögulegum stöðum og bögglaðist áfram á skautunum í næstum því klukkutíma og guess what - ég datt aldrei!!! Og undir lokin var ég farin að geta verið nokkurnveginn á gönguhraða!
Er ég best eða hvað?!
Það var reyndar ca 5 ára stelpa sem brunaði fram úr mér - en það verður bara að hafa það!!

Á morgun er svo 17. júní og það á að vera gott veður!
Ég er mjög ánægð með það!
Það þýðir að maður getur farið niður í bæ, fengið sér kandíflos (eða eitthvað álíka 17. júní-legt) og ekki verið niðurrigndur og kaldur!
Vúhú!

Sjáumst í bænum á morgun!

Stelpan