Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, júní 06, 2005

Komin á klakann!

Jæja gott fólk, Tælandsævintýrinu er hér með lokið - kom heim seint á laugardagskvöldið!

Ferðalagið heim gekk nú ekki alveg eins vel og vonað hafði verið.
Við áttum flug heim á föstudaginn um miðnætti. Við komum á flugvöllinn í Bangkok og þá kemur í ljós að það var búið að seinka fluginu um einhverja 7 tíma - til 8 um morguninn!
Frábært!
Við fengum samt að gista á flugvallarhótelinu sem var alveg 5 stjörnu hótel - hrikalega fínt allt saman!
Svo tókum við flugið um 8 og vorum komin til Danmerkur upp úr 2 að dönskum tíma. Þá tók við 9 tíma bið eftir fluginu heim! Við ætluðum að versla heil ósköp á Strikinu en viti menn - það lokaði allt kl. 5 og þar sem við vorum svo lengi að koma okkur út þá vorum við ekki komin á Strikið fyrr en rúmlega 4 - svo lítið varð úr verslunarferð. Hins vegar náði ég að kaupa mér ein gjeeeeveik stígvél svo - not a total loss!!!
Tókum svo vélina heim um 11 og vorum komin heim rétt rúmlega 12 að íslenskum tíma!
Og boy ó boy hvað það var gott að komast heim til sín í sína sturtu og sitt rúm!

Ég verð alveg að viðurkenna að ég væri alveg til í að liggja á ströndinni með kokteil í hendinni í nokkra daga og ég hugsa að krakkarnir á Koh Samui skemmti sér konunglega - ekki satt?!
Engu að síður er ég mjög glöð að vera komin heim til mín og held að ég hafi tekið rétta ákvörðun með að koma heim!!
Amen fyrir því!!

Allavega, er farin að ganga frá draslinu mínu - heimilið er bara í rúst eftir að ég kom heim!!

Stelpan