Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, júní 13, 2005

Ættarmót

Erum við ekki að grínast með þetta veður?! Ég var í fríi alla síðustu viku og að sjálfsögðu var hundleiðinlegt veður - nú þegar ég er byrjuð að vinna...
Týpískt!!!

Allavega, ég fór á ættarmót í Reykjanesi um helgina.
Það var fínt - reyndar frekar lítið af fólki á mínum aldri sem sá sér ástæðu til að mæta - en við frændsystkinin mættum nánast öll og skemmtum okkur konunglega!

Híbýlin okkar voru nú samt alveg vafasöm!
Við vorum í einhverri kjallaraíbúð í fyrrverandi skóla (eða eitthvað).
Teppin voru það óspennandi að við gengum í skónum alla helgina - það hafði trúlega aldrei verið ryksugað miðað við það magn skordýra sem ég fann út um alla íbúð!
Það var ekkert á veggjunum - hins vegar var málningin farin að flagna á hinum ýmsustu stöðum! Alveg frábært!
Svo það besta - ég fór á klósettið.
1) Það var ekki hægt að læsa hurðinni
2) Flísarnar á veggjunum og gólfinu voru allar að hrynja af
3) Það var smá ljóstýra á veggnum en alveg myrkur innar og í sturtunni
4) Sturtan var ógeð - ég hefði ekki baðað mig í henni þótt ég hefði fengið borgað fyrir það
5) Það var ekki hægt að sturta niður
6) Það var ekkert heitt vatn í krananum - bara kalt
7) Kalda vatnið í krananum var brúnt
8) Það var enginn spegill - hann hafði greinilega verið brotinn af
To sum up - þetta var eitt það mest óspennandi klósett sem ég hef nokkurn tímann komist í tæri við!!!
Sem betur fer vorum við nú samt nánast ekkert í íbúðinni nema rétt þegar við sváfum!

Ólíkt aðstöðunni var umhverfið samt æðilsegt. Sérstaklega fannst mér gaman að því hvað það var mikið af fuglum þarna. Líffræðingurinn gekk um og greindi fugla hægri vinstri - heldur betur!
Svo sáum við líka fullt af selum og meira að segja eina hrefnu í Ísafirðinum!
Já, þetta var svo sannarlega paradís líffræðingsins!

En þrátt fyrir allt var þetta hið fínasta ættarmót - myndirnar ættu að koma hvað af hverju!

Stelpan