Duran og útilega
Já ég fór á Duran Duran tónleikana - þeir voru snilld!
Það eina sem skemmdi fyrir tónleikunum voru óþolandi, freku Íslendingarnir sem tróðu sér alls staðar á milli og voru með leiðindi!
Það var sko nóg af þeim!!!
En tónleikarnir sjálfir voru æðislegir - þeir voru svo hrikalega svalir á sviðinu að það gustaði alveg af þeim!
Gítarleikarinn var bara með rettuna í munnvikinu, spilandi með gítarinn fyrir aftan bak og eitthvað og Simon le Bon átti alveg fáránlega mörg fáránlega góð múv!!
Sjitt hvað þeir voru svalir!
Toppurinn á tónleikunum fannst mér svo þegar þeir tóku Ordinary world - ég fékk alveg gæsahúð niður á rass!!! Það var geðveikt!!!!
So to sum up - æðislegir tónleikar þrátt fyrir Íslendingadónana!
Allavega, á föstudeginum var svo haldið á Ólafsvík á Færeyska daga.
Ég veit ekki alveg hversu mikið ég á að nenna að skrifa - helgin var náttúrulega bara snilld frá upphafi til enda!!! Gullkornin flugu hægri vinstri og það er ekki laust við það að maður hafi bætt nokkrum vikum við líf sitt með öllum þessum hlátri!
Svo skildum við nú hvorki eitt né neitt í öllu þessu veseni með veðrið! Við vöknuðum bara á laugardeginum - jújú, það var rok og rigning hjá okkur en ekkert til að vera að hafa einhverja brjálaðar áhyggjur af! Við heyrðum það svo bara í fréttunum um kvöldið að fólk hafi verið að flýja inn í íþróttahúsið og skólann og það hafi verið eitthvað meiriháttar ástand!
Persónulega held ég að flest þau tjöld sem fuku hafi bara verið illa tjaldað og á asnalegum stöðum!!!
En við skemmtum okkur konunglega og ég þakka mannskapnum bara kærlega fyrir helgina!!
Og að lokum - loksins fer að líða að því að ég geti farið að pína íþróttamennina eins og ég var búin að plana. Spennó spennó spennó!
Ég fékk annað fórnarlamb til að æfa mig á um daginn og það gekk svona glimrandi vel, strákurinn stóð sig eins og hetja - Palli, ég veit þú ert ekki að lesa en thank's a million anyway!
Nú er ég bara reiðubúin til að fara í the real stuff!!!
Þetta verður æði!
Stelpan

<< Home