Hálfvitar í umferðinni!!!
Ég fór og tók bensín áðan - en það í sjálfu sér flokkast ekki sem stórfrétt.
Ég tók bensín á OB stöðinni á Snorrabraut en þar er bara sjálfsali. Þegar ég kem er einhver karl að erfiða við þennan "flókna" sjálfsala og þurfti ég að bíða svo lengi að ég var farin að taka lit á meðan ég beið!
Allavega, loks kom að mér og ég tók mitt bensín og ekkert að því. Svo ætlaði ég að taka kvittun svo ég stóð fyrir aftan einhvern mann sem var í sjálfsalanum. Þegar hann var búinn kemur kallinn aftur, treðst fram fyrir mig og tekur sína kvittun. Ég nennti ekki fyrir mitt litla líf að fara eitthvað að setja út á frekjuna, tók bara smá sólbað meðan ég beið.
Nú, síðan fer ég út af bensínstöðinni og stoppa á rauðu - með kallinn á undan mér - hann var að beygja til vinstri, ég ætlaði beint áfram.
Græna ljósið kemur, kallinn fer af stað og ég líka. Nema hvað - kallinn tekur skyndiákvörðun um að hætta við að beygja en fara beint áfram í staðinn og sveigir bílnum svona skemmtilega í veg fyrir mig! Ég - að sjálfsögðu - negldi niður og gaf honum eitt stutt flaut svona rétt svo hann átti sig á því hvað hann sé að gera.
Og þá byrjar það!!!
Kallskarfurinn stöðvar bílinn - af því leiðir að ég þurfti að stöðva minn bíl þannig að afturendi bílsins stóð út á gatnamótunum!
Ég flautaði aftur.
Í þetta skipti kemur kallinn út úr bílnum, æðir að mínum bíl og fer að garga á mig hluti eins og hvað sé eiginlega að mér, hvort ég sé með bílprófið á mér (spes - ég er nú aldrei með bílprófið sjálft á mér, læt ökuskírteinið yfirleitt nægja) og að ég eigi ekki að skipta mér af öðrum í umferðinni og fullt af alls konar skömmum og fúkyrðum sem ég bara hreinlega átti alls ekkert skilið - enda var það hann sem var að skapa hættuna í umferðinni, ekki ég!!!
Ég garga eitthvað á hann til baka um að hann eigi sjálfur að læra að aka og þurfi að færa bílinn sinn!!!
Meðan á þessu öllu saman stendur eru búin að líða ca 2 ljós og tel ég sjálfa mig heppna að hafa ekki fengið bíl aftan á mig eða inn í hliðina. Að sama skapi voru bílar að keyra upp á gangstéttum og köntum til að komast fram hjá "teppunni"!
Loksins fer kallinn aftur inn í bíl og ekkert gerist - hann ætlar sko ekki að láta mig komast upp með þetta heldur situr sem fastast!
Á endanum, þegar honum var farið að leiðast fer hann af stað og beygir strax af leið - til þess að fara til vinstri eins og hann upphaflega ætlaði!!!
Ég hef aldrei á minni ævi lent í öðru eins!!! Svona fólk á náttúrulega bara ekkert að vera á götum Reykjavíkurborgar!
Ég var nett brjáluð og hugsa með mér - á ég bara að láta hann komast upp með þetta?!
Hell no!
Ég fór heim og hringdi í lögregluna og vitiði hvað hún sagði?!
"Það er ekkert hægt að gera"
Hvað meinarðu - ef ég væri að hringja út af ofsaakstri einhvers 17 ára stráks yrði allt lið lögreglu sent af stað!!! Ég ætla ekkert að kæra manninn eða neitt svoleiðis - mér finnst bara allt í lagi að hann fái áminningu! Ég sagði löggunni stuttu útgáfuna af því sem gerðist og spurði hann hvort honum findist það í lagi að svona lið væri í umferðinni og hann svaraði því bara ekki!!
Svo spurði ég hann að því hvort lögreglan í Reykjavík væri í alvörunni jafn gagnslaus og ég hafði búist við - hann svaraði því ekki heldur!
Það var greinilegt að hann var sammála mér - hann nennti bara ekki að gera rassgat!!! Ég bið ekki um meira en bara að hringja í kallinn og skamma hann smá - það hefði alveg nægt mér!!
Ég endaði svo á því að skella á lögguna - það var alveg greinilegt að hann ætlaði sér ekki að gera neitt - það hefði ekki skipt máli þótt gaurinn hefði myrt einhvern - honum var alveg sama og hann nennti ekki að hreyfa á sér rassgatið!!!
Djöfull hata ég lögregluna í Reykjavík - það skiptir engu máli í hverju maður lendir - hvort sem maður lendir í slysi eða hvað - löggan kemur á staðinn og gerir hlutina bara ennþá verri!!! Ég veit bara ekki til þess að lögreglan hafi gert einhverjum sem ég þekki nokkurt gagn!!! Ég hef ekki haft mikið álit á lögreglunni hingað til en að tala við þennan gaur var alveg dropinn sem fyllti mælinn - lögreglan getur farið í rassgat fyrir mér!!!
Svo niðurstaðan er sú - ég slapp lifandi og óklesst út úr þessu - no thanks to helvítis kallinn eða löggan!
Það eina góða sem mögulega getur komið út úr þessu er að ég get varað ykkur hin við fíflinu sem er á bílnum NJ-021 og varað ykkur við að eiga nokkur samskipti við lögregluna í Reykjavík - enda á hún bara eftir að taka ykkur í rassgatið!!!
Stelpan

<< Home