Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, júlí 18, 2005

Party on!

Djö hvað það var gaman á laugardaginn!!!
Já við fyrrverandi stærðfræðibrautarlúðarnir kunnum sko að skemmta okkur!

Þetta byrjaði allt saman með því að við pöntuðum okkur pizzu.
Það var sérviskunni í Árna og aulunum niðrá Domino's að þakka að við fengum 4 pizzur í stað 3 eins og við pöntuðum - þetta var ég mjööööög ánægð með á sunnudeginum!!!.

Þegar áti var lokið upphófst mikil gleði sem samanstóð af drykkjuleikjum, myndatökum, grænmeti, upprifjunum gamalla tíma og að sjálfsögðu örfáum öllurum!
Við Árni bonduðum í Arrested Development umræðum, en enginn annar virtist hafa séð metnað sinn í að vera búinn að horfa á þá snilld sem þessir þættir eru!!!

Sumir gerðu sér reyndar upp magakveisu og fóru snemma heim að kúra hjá konunni! Þetta var ekki vel liðið og er viðkomandi hér með áminntur!!!

En, to to sum up - meiriháttar skemmtilegt partý!!! Hlakka til að mæta í það næsta sem skv. dagsskrá verður haldið í Danmörkinni!! Mjög spennandi allt saman!

Stelpan