Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, júlí 13, 2005

Óréttlæti

Ég fór í Baðhúsið áðan - sem er afrek út af fyrir sig - en það er ekki sagan!

Allir sem hafa farið í Baðhúsið (eða bara keyrt þar framhjá) vita að það eru nánast engin stæði ætluð Baðhúsinu svo oftar en ekki þarf maður bara að búa sér til stæði við einhvern kant.
Það þarf væntanlega ekki að taka það fram að ég er ekki sú eina sem geri þetta!

Ég semsagt fór áðan í Baðhúsið og viti menn - ekkert stæði!
Ég keyrði þá bara aðeins lengra og hvað haldiði - akkúrat eitt laust "stæði" handa mér.
Fínt mál, ég legg í það og fer í Baðhúsið.

Þegar ég kem aftur er ég komin með stöðumælasekt!

Ok, það fyrsa sem ég hugsa er - það eru engir stöðumælar hérna!!! Ég lagði ekki í fatlað stæði eða merkt einkastæði eða hjá brunahana eða hjá gulri línu eða neitt svoleiðis!!! Þar að auki hef ég lagt í þetta stæði oft oft oft - og ef ég er ekki í því - þá er einhver annar bíll í því!!!
Mjög spes!

Svo kíki ég á sektina og gái hver glæpur minn er og þá kemur í ljós að ég braut reglu 22 (aftan á sektinni) en hún hljóðar svo:
Stöðvað/lagt á/eða of nærri vegamótum (5 metra regla).

Jújú, bíllinn er ekki nema kannski 2-3 metrum frá gatnamótunum - ég vissi bara ekki einu sinni að þessi regla væri til!!! Það hefur farið aaaaalveg fram hjá mér þegar ég var í ökuskólanum að maður þurfi að leggja 5 metrum frá gatnamótum!

Allavega, ég lít í kringum mig og sé að bíllinn hinum megin við götuna er nær gatnamótunum en minn - en þar er engin sekt. Aðeins lengra er bíll sem er lagt fyrir brunahana - þar er heldur engin sekt. Svo fer ég aðeins að hugsa málið og tekst að hugsa upp þónokkur gatnamót þar sem máluð bílastæði liggja bara beint að gatnamótunum - sem brýtur greinilega 5 metra regluna! Svo ekki sé minnst á bara götur almennt t.d. í Þingholtunum og þar í kring - þar má leggja við gatnamótin, í beygjunni og hvar sem maður getur troðið bílnum - þrátt fyrir að það brjóti þessa meintu 5 metra reglu!!!

Það er mér því fullkomnlega ljóst að það hefur verið brotið á mér for no appearant reason og ég er ekki sátt við það!!!

Stelpan