Sól sól sól
Eina ástæðan fyrir því að ég sit inni í tölvunni eins og einhver auli að blogga í þessu blíðskaparveðri er sú að ég lofaði pabba að hjálpa aðeins til niðrá fasteignasölu á meðan allir eru í fríi - annars væri ég sko bókað úti í sólbaði!
Nú, að sólbaði undanskildu hefur ekki margt drifið á daga mína upp á síðkastið!
Verkefnið mitt gengur hægt sökum þess að blessaðir íþróttamennirnir eru allir svo uppteknir - að hlaupa Laugaveginn eða keppa á hinum og þessum mótum! Lítur allt út fyrir að ég verði bara að taka rispu í lok ágúst og klára verkefnið endanlega í september! Það er svosem fínt bara!
Síðan var smá Tælandshittingur á þriðjudaginn!
Ragna (gestgjafinn) átti í minniháttar vandræðum með að ákvarða hversu mikið þyrfti að kaupa af ávöxtum og ostum o.þ.h. svo það fór svo að við átum: 2 melónur, 2 ananasa, 2-3 dollur af jarðaberjum, 2 paprikur, 5 osta og 3 pakka af kexi!!! Samt var afgangur!!!
Díses kræst - já maður fer ekki svangur heim frá Rögnu!!!
Svo um helgina er stefnan sett á sumarbústað í Grímsnesinu!
Veðurspáin er klikkuð - sól, blíða og brjálaður hiti!!! Og já, það er heitur pottur!!!
Ég bara get ekki fyrir mitt litla líf ímyndað mér að helgin verði eitthvað annað en fullkomin!!!
Síðan er ekki úr vegi að ljúka þessari færslu með hamingjuóskum!
Bæði mamma og Nína systir eiga afmæli í dag - kornungar báðar tvær!!!
Ég var meira að segja ýkt dugleg og bakaði jógúrtkökur fyrir Nínu til að taka með í bústaðinn!
Segiði svo að ég sé ekki frábær systir!!!
Stelpan

<< Home