Von Trapp fjölskyldan
Já ég er hér með formlega orðin meðlimur í hinni góðkunnu Von Trapp familíu!
Það er ekki vegna þess að ég er einhver brjálaður söngfugl - klifrandi Alpana og syngjandi eins og vitleysingur!
Nei ég fór nebblega í gær og keypti mér jakka! Bleikan gardínujakka!!!
Núna myndi ég sko sóma mér vel með Julie Andrews og fjölskuldu í Austurríki!!!
Annars er lítið í fréttum.
Ég tryggði mér farmiða til Eyja áðan - nú verður ekki hjá því komist að fara á þjóðhátíð og það verður gaaaaaaaman!!!
Svo verð ég að lýsa yfir óánægju minni með bloggleti landans!
Ég veit að ég get verið löt - en þetta er farið að vera alveg út í hött!!!
Hvað á maður að gera af sér allan daginn í vinnunni ef enginn nennir að blogga?!?!
Mér finnst þessi tilhneyging vera af hinu illa og bendi ég bloggurum á að fara að skrifa hið snarasta!!!
Takk fyrir og bless.
Stelpan

<< Home