Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, ágúst 29, 2005

Bugun

Já það er buguð manneskja sem situr við tölvuna akkúrat núna!
Ég nenni þessu ekki lengur!!! Ég get ekki meir!!!

Þannig er mál með vexti að ég fékk styrk til að gera vekefni í sumar - það var sumarvinnan mín.
Fyrsti mánuðurinn fór í undirbúning, að sækja um leyfi og þess háttar - eftir það gat verkefnið sjálft hafist.
Ég þurfti að tala við nokkra þjálfara, fá að hitta einhverja íþróttamenn og fá þá á mitt band. Þetta gekk mjög vel - allir voru til í að koma, fannst þetta rosa spennandi og margir voru bara æstir að komast sem fyrst.
Þar með er sagan búin!
Síðustu 2 mánuði er ég búin að vinna að því að fá fólk til að koma - gríðarlegt magn símavændis hefur átt sér stað - en ekkert gerist!
Það eru allir til í þetta, margir hafa samband og þónokkrir bóka tíma - en það í alvöru að mæta - bara gerist ekki!!!

Ég er með 3 bókaða í kvöld - fyrstu 2 eru búnir að svíkja - ég er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að vera að bíða eftir þeim þriðja eða bara spara mér það og fara heim!

Þetta er ömurlegt!!! Ég er búin að vera að segja sjálfri mér að svona sé þetta bara - fólk komi á endanum og þetta gangi allt saman upp! Ég er bara farin að sjá fram á það að þetta gangi bara alls ekkert upp! Hvernig á ég að geta gert rannsókn á einhverju ef enginn mætir?!?!
Í lok september er svo allra síðasti séns að skila niðurstöðum úr verkefnum sumarsins og hvað á ég að segja - það eru engar niðurstöður því það mætti enginn!!!

Þetta er ógeðslega ömurlegt!!!
En jæja, ætli ég láti mig ekki hafa það að bíða eftir þeim síðasta - ég er búin að sitja og bíða í næstum 3 tíma núna - nokkrar mínútur í viðbót ættu ekki að skaða!

Stelpan