Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, ágúst 23, 2005

Endalok afmælishátíðar

Já afmælishátíðarhöldunum er formlega lokið.
Maður á nefninlega ekkert bara afmæli í einn dag - hjá mér var það aðfangadagur afmælis, afmælisdagurinn sjálfur og annar í afmæli!

Ég græddi heilan helling af fínum, fínum pökkum auk þess sem afmæliskveðjunum rigndi inn!

Á afmælisdaginn sjálfan var svo minniháttar afmælisveisla heima á Brekkulæk og eftir hana var farið niður í bæ og ég verð að segja að það er langt síðan ég hef skemmt mér jafn vel í bænum!
Ég var líka dugleg að monta mig af því að ég ætti afmæli og græddi út á það fullt af knúsum og bjór og svona!!!

Svo var maður nú heldur ómenningarlegur á laugardeginum - var bara að koma mér fyrir á nýja heimilinu, taka til og svoleiðis. Um kvöldið var svo innflutings/menningarnæturpartý heima á Laugarvegi.
Eftir það gerðum við þau mistök að fara í bæinn. Ekki það að það var fínt í bænum - en eftir dálitla stund byrjaði að rigna og guð minn góður það rigndi!!! Leigubílaröðin náði hálfa leið til Hafnarfjarðar, það var hvergi hægt að komast inn fyrir mannmergð og það var ekki fræðilegur að við nenntum að labba heim! Á endanum tókst okkur svo að húkka far með einhverri stelpu heim - ég held að ef hún hefði ekki skutlað okkur þá stæðum við ennþá undir trénu niðrá Lækjartorgi að reyna að redda leigubíl!!! Þetta var madness!!!
En þetta blessaðist nú allt saman - við komumst heim og ég gisti fyrstu nóttina á nýja heimilinu!

Svo hér með er ég formlega flutt inn til Nínu systur - já nýr kafli í lífinu er hafinn!

Stelpan