Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

sunnudagur, ágúst 14, 2005

Frægð og frami

Já maður er svo sannarlega kominn í frægra manna tölu!

Haldiði að fréttamenn Dagblaðsins hafi ekki komist á snoðir um þau afburðaskrif sem birtast hér á síðunni og tekið þá ákvörðun að birta nokkrar línur í blaði sínu!
Heldur betur!!

Svo grófu þeir líka upp mynd af mér til að birta með en þar fór ég að þekkja DV fyrir það sorablað sem það er!!! Þeir fundu mynd sem tekin er af mér í Danmörku á leiðinni heim frá Tælandi - mynd sem er tekin eftir 8 tíma bið og 11 tíma flug!! Það er ekki með nokkru móti hægt að segja að þetta sé góð mynd!!! En nei, þetta er mynd sem fréttamaður Dagblaðsins lítur á og hugsar með sér "þessi mynd er kjörin!"

Þeim sem vilja skoða herlegheitin er bent á að skoða Dagblaðið síðasta fimmtudag.
Ástæðan fyrir því að þessi tilkynning kemur svona seint er sú að ég er búin að vera í ferðalagi síðan einmitt á fimmtudaginn og ekkert komist í tölvusamband!

Annars vorum við að ræða þessa meintu frægð mína og þá vaknaði sú spurning upp hvort DV sé heimilt að taka svona skrif upp og birta þau án þess að spyrja nokkurn mann?!
Mér nefninlega hálfbrá þegar Clara hringdi í mig og sagði mér að DV hefði verið að birta kafla úr blogginu mínu - maður á það alveg til að segja óviðeigandi hluti á blogginu svo ég var hálfhrædd um að fá yfir mig reiði einhvers sem ég hef kannski ekki gert sanngjörn skil!
Sem betur fer slapp þetta nú allt saman og ég vona að enginn úti í bæ hafi móðgast af því sem birt var!

En þrátt fyrir allt hef ég ákveðið að láta skyndilega frægðarsól mína ekki skyggja á raunveruleikann heldur mun ég halda áfram mínu striki sem aldrei fyrr!!!

Stelpan