Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

Þjóðhátíð

Jæja þá er maður kominn aftur upp á Íslandið eftir nokkurra daga veru í Vestmannaeyjum.

Við áttum ekki ferð heim fyrr en með Eyjólfi kl. 4 í dag - en eftir nokkrar reddingar komum við Nína systir til baka með miðnæturferðinni í gær - mjög sátt við þá breytingu!

Í stuttu máli sagt var þjóðhátíðin snilldin ein eins og við var að búast!
Í svörtum fötum skoraði fáránlega mörg stig á föstudeginum þegar þeir tóku Kiss á pakkann. Grafík var líka geðveik auk þess sem brekkusöngurinn var hundskemmtilegur að vanda!

Ef það er eitthvað sem maður gat kvartað yfir þá var það veðrið en á laugardaginn var allt blautt - það var varla þurr þráður í dalnum!!!
Svo á mánudeginum var bara rugl veður - hífandi helvítis rok og rigning!! Ömurlegt hreint út sagt!
En maður náði sem betur fer að flýja inn í hús svo þetta slapp allt saman!

Ég held það taki því nú varla að fara að reyna að segja einhverjar Eyjasögur að svo stöddu en þær voru margar og skemmtilegar!!

En ég þakka bara fyrir mig - sjáumst að ári!!!

Stelpan