Ray
Ég lét undan þrýstingi í gær og horfði á Óskarsverðlaunamyndina Ray.
Það sem ég vissi um Ray Charles áður en ég sá myndina var:
Hann var svartur.
Hann var blindur.
Hann samdi fullt af góðum lögum - sum þekki ég.
Búið.
Ég hélt að þessi mynd væri svona um líf hans - baráttu hans frá því að vera fátækur, svartur, blindur strákur upp í að verða frægur tónlistarmaður. Það hvað þetta var allt saman erfitt en honum tókst að berjast gegn mótlætinu og skapa sér nafn - og að sjálfsögðu hitta einhverja gullfallega svertingjastúlku og bla bla bla. You all know the story.
En nei!
Jú jú, hann var fátækur, svartur, blindur strákur og jú jú, hann varð ýkt frægur og allt það en ekki vissi ég að gaurinn hefðir verið svona ógeðslega mikill sleazebag!!!
Gaurinn var ekkert annað en ógeðslegur dópisti sem hélt framhjá sætu konunni sinni eins og ég veit ekki hvað!
Á vissum tímapunkti í myndinni hugsaði ég bara með mér - af hverju var þessi mynd gerð?!?!
Af hverju er verið að sýna öllum hvað gaurinn var í raun ömurleg manneskja!
Ég var bara orðin nett pirruð út í gaurinn og gat ekki beðið eftir að myndin væri búin.
Ég held svei mér þá að ég hefði verið mun betur sett að hafa aldrei séð þessa mynd - svona hluti langar mann ekkert endilega að vita um fólk!
Það eina sem var virkilega gott við þessa mynd var Jamie Foxx en hann átti Óskarinn tvímælalaust skilið - algjör leiksigur!!!
En niðurstaðan er sú - Ray Charles var dópistahóra og það var honum að kenna að bróðir hans dó!!!
Stelpan

<< Home