Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, ágúst 08, 2005

Tjaldið

Úff úff úff, það er ekkert lát á bloggletinni á þessu heimili!!!

Það helsta sem hefur verið í gangi upp á síðkastið er blessað partýtjaldið hennar Nínu.
Stórt hústjald sem við höfum ávallt notað bara sem partýtjald í útilegum. Þetta tjald er búið að lifa af Eyjar x 2 og Færeyska daga x 2 en það lifði ekki af krakkana í hverfinu mínu!

Þannig er mál með vexti að eftir þjóðhátíð í ár var tjaldið blautt í gegn svo það var nauðsyn að tjalda því útí garði og láta það þorna.
Daginn eftir voru nokkrir ~6-8 ára guttar búnir að brjóta það í tvennt!!!
Við erum að tala um stórt og gamalt hústjald með feitum járnsúlum!!! Nei nei, brotið í tvennt!!!
Foreldrarnir voru nú ekki lengi að viðurkenna sekt drengjanna enda ekki nokkur leið til annars - svo í staðinn var farið í útsöluna í Útilíf og keypt nýtt tjald á mjög sanngjörnu verði.

Þetta hljómar eins og stutt og laggóð saga en í rauninni var þetta töluvert meira vesen en það hljómar. Það bætti svo ekki úr sök að þegar ég fór og keypti blessað tjaldið gleymdi ég debetkortinu mínu í Útilíf svo það var gerð dauðaleit að því, kortinu lokað og alls konar vesen!! Og snillingarnir í Útilíf voru ekkert að hafa fyrir því að fletta mér upp í símaskránni og hringja í mig til að láta mig vita að ég gleymdi kortinu - og það var ekki til að auðvelda leitina!!!
Jæja, svona er þetta víst stundum!!!

Annars er ekki rassgat að frétta - Elfa frænka úr Ameríkunni í heimsókn með sína familíu, ætli maður fari ekki í eitthvað ferðalag með þeim um helgina.

Jú, og svo er ég með hálsbólgu!!
Skál fyrir því!

Stelpan