Þungu fargi létt!
Ég er búin að finna outfit fyrir helgina!!!
Þetta stóð tæpt á tímabili - en það hafðist!!!
Annars er gaman að segja frá því að á morgun mun ég að öllum líkindum flytja út af hótel mömmu og inn til Nínu systur!
Allt saman liður í því að verða fullorðinn - kannski kominn tími til!!!
Er búin að vera að fara í gegnum dótið mitt - hvað ég ætla að taka, hvað ég þarf að skilja eftir og hverju má henda og svona. Aldrei hefði mig grunað að ég ætti svona mikið af drasli!!!
Ekkert endilega eitthvað nothæft og eigulegt - nei bara alls konar dótarí, eldgömul og úrsérgengin föt sem aldrei hefur mátt henda - þetta á þó aðallega við um skótau!
Hins vegar hefur þessi flutningur minn verið hvalreki fyrir Unni systur en hún er búin að græða fullt af fötum og alls konar drasl sem ég hefði annars hent. Að auki fær hún rúmið mitt, skrifborðið og hilluna sem því fylgir og ofan á allt saman - hún ætlar að hirða herbergið mitt!!!
En svona er þetta víst, ef maður ætlar að vera virðulegar mastersnemi og vill verða tekinn alvarlega sem slíkur verður maður að fitta inn í hópinn! Það ætla ég að gera með því að tékka mig út af hótel mömmu og verða fyrir alvöru hinn fátæki námsmaður!!!
Stelpan

<< Home