Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, september 19, 2005

Debetkortið

Ég fór á Papaballið í Krikanum á laugadaginn - brjálað stuð og allt það.
Síðan tókum við taxa heim og svona og allir rosa sáttir.

Daginn eftir var ég að ganga frá djammveskinu mínu - ganga frá lyklunum, glossinum, debetkortinu o.þ.h. og þá tók ég eftir því að það var eitthvað weird við debetkortið mitt.
Ég fór að skoða það betur og sá að það var búið að bíta í kortið - ekkert smá nart heldur bara fast svo það er beyglað og með tannaförum!!!
Ég hugsaði til baka og áttaði mig ekki á því hvenær þetta gæti hafa gerst.
Við Nína systir fórum að ræða þetta og þá allt í einu mundi hún eftir því að hafa séð leigubílstjórann bíta í kortið mitt!!! Ég sá það ekki því ég sat beint fyrir aftan hann!
Leigubílstjórinn beit í kortið mitt?!?!?!

Ég skil ekki af hverju ég lendi alltaf í einhverju svona stórfurðulegu á djamminu!!!
Ég er búin að hugsa mikið um þetta og ég bara fæ það ekki skilið af hverju leigubílstjórinn beit svo harkalega í kortið!!! Það eina sem mér datt í hug að gæti verið ástæðan er sú að gildistími kortsins fer að renna út - það er samt allt í góðu með það enn sem komið er svo - ég veit ekki hvað málið er!!!

Að lokum langar mig að segja að ég hata Hive!
Ég er búin að bíða í þrjár vikur eftir tengingu - mér er alveg sama um allar afsakanir um að það sé mikið að gera og mikið álag og bla - þetta er fullkomlega óásættanleg þjónusta!!!
Ef þetta fer ekki að koma á allra næstu dögum þá fer ég bara og finn mér eitthvað annað - sama þótt það sé dýrara - þetta er bara fáránlegt!!!

Stelpan