Hvers eigum við að gjalda?!
Í alvöru gott fólk!!! Hvaða bölvaða húmbúkk er þetta eiginlega?!?!?!
Ok, fellibylurinn Katrín var skelfilegur - hann lagði heilu borgirnar í rúst og mér þykir það leiðinlegt og ég finn til með þeim sem misstu allt!
En - fellibylurinn Katrín gekk yfir núna í vikunni - bensínið sem við erum að dæla á bílinn okkar í dag var keypt inn hvað - í síðasta mánuði eða eitthvað!!!
Það er alveg með ólíkindum hvað þeir eru alltaf fljótir að hækka verðið ef eitthvað kemur upp á einhversstaðar í heiminum - samt lækka þeir það aldrei svo fljótt ef heimsmarkaðsverð lækkar!!!
Óþolandi pakk!!!
En að öðru - eftir síðustu skrif mín um uppgjöf mína í þessu verkefni hefur símtölum nánast rignt inn - allir vilja bjóða fram sína aðstoð! Þetta þakka ég kærlega fyrir! Málið er bara að ég get ekki þegið þessa aðstoð - það var partur í bugun minni! Vísindasiðanefnd er nefninlega svo hörð á þessu að við þurftum að vera fyrirfram búin að fá samþykki þjálfara þeirra sem við fengum til okkar - þeir þurftu að skrifa undir samstarfsyfirlýsingu og eitthvað bölvað vesen - þess vegna getum við ekki fengið bara einhverja - við urðum að fá einhverja sem eru að æfa hjá þeim þjálfurum sem við fengum samþykki hjá og Vísindasiðanefnd gútteraði! Bölvað rassgat!!!
En ég þakka fyrir engu að síður!!!
Stelpan

<< Home