Loksins!
Internetið er komið heim til mín!!!
Þeir snillingar niðri á Hive hljóta að hafa lesið bloggið mitt því á föstudaginn kom gutti heim og setti netið upp!!!
Það er því nokkuð ljóst að from now on mun ég hala niður heilum ósköpum af þáttum og bíómyndum - nú fara bíó og vídjóleigur að vera úreld tæki!!!
Snilldin ein!
Þrátt fyrir einstaklega mikla bloggleti hefur margt á dagana drifið síðan ég nennti síðast að skrifa.
Til dæmis er loksins - loksins - búið að fjarlægja annað bílhræið úr portinu heima.
Þessi bíll er búinn að vera þarna síðan portið var búið til held ég - allavega svo lengi að það var farinn að vaxa mosi hér og þar á honum - grínlaust!
Hitt bílhræið virðist samt því miður ekkert vera á leiðinni neitt en samt - 50% sigur!
Og talandi um bíla - var í heimsókn hjá m&p í síðustu viku og allt í einu heyrast furðuleg læti að utan. Við fórum út og gáðum hvað var í gangi - þá var bíll að keyra upp Brekkulækinn og annar að koma úr portinu hjá Kleppsveginum. Bílstjóranum sem var að keyra upp Brekkulækinn varð svo mikið um að hann beygði af leið og keyrði hálfa leið inn í garðinn okkar!!! Ójá, bíllinn vó salt á runnunum/kantinum! Þetta var alveg fáránlegt! Gaurinn sem keyrði inn í garð trylltist gjörsamlega - óð gargandi út úr bílnum og ætlaði bara í hinn bílstjórann. Svo fór hann og losaði bílinn úr runnunum og keyrði í burtu. Hann hafði samt vit á að koma aftur því hann áttaði sig á því að það var búið að hringja á lögguna. Annars veit ég ekkert hvernig þetta fór - löggan kom og talaði við þá báða, skoðaði bílinn og svo var þetta bara búið.
Það er samt alveg á hreinu að ef það hefði verið bíll í stæðinu þar sem hann "stakk sér inn" þá hefðu trúlega 4 bílar farið alveg í klessu því gaurinn var á fleygiferð!!!
Þetta var dáldið spes!
Ú ú ú - svo er ég búin að sjá fyrsta þáttinn í 2. seríu af Lost!!!
Guð minn góður!!! Ég get ekki beðið eftir næsta þætti!
Maður var svona nett að vona að þeir myndu fara að svara einhverjum spurningum en nei - það var engum spurningum svarað heldur bættust bara spurningar við!!!
Úff hvað ég hlakka til að sjá næsta þátt!!!
Æ - svo er búið að klukka mig tvisvar!!!
Ég er búin að vera að hugsa um hvað í veröldinni ég á eiginlega að segja um mig - ég skal taka mig á (jafnvel á morgun) og finna eitthvað áhugavert að segja!
Annars held ég að ég fari að láta þetta nægja í bili - ætla að fara til Nínu Kristjáns í kvöld og horfa á Newlyweds og American Princess á Sirkus - good stuff!!!
Stelpan

<< Home