Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

sunnudagur, september 04, 2005

Netleysi

Já, netið er búið að liggja niðri hjá okkur systrum upp á síðkastið svo maður er ekki búinn að vera sérlega duglegur að pota sér í tölvu annars staðar! En þessu verður kippt í liðinn strax í næstu viku svo örvæntið eigi!

Að sama skapi er teljarinn minn búinn að vera í ruglinu upp á síðkastið! Síðustu daga hefur hann verið fastur í 2 heimsóknum! Þetta er nú búið að breytast og er hann nú kominn niður í 1 heimsókn! Veit ekki alveg...

Svo þykir mér gaman að segja frá því að ég fór á Todmobil í gær - það var gaman gaman!!!
Með ótrúlegum sannfæringarmætti mínum tókst mér að sannfæra bæði Nínu Kristjánsdóttur og Clöru til að koma með mér á tónleikana - ég held þær hafi ekki séð neitt sérstaklega eftir því að hafa komið!!!
Ég er hrædd um að þetta verði ekki toppað neitt á næstunni!!!

Annars er skólinn hægt og bítandi að byrja. Enn sem komið er er ég aðeins byrjuð í 1 kúrsi og hann er ekki kenndur nema 2x í viku svo þetta byrjar rólega. Kannski eins gott því ég er ennþá að klára verkefni sumarsins - og svei mér þá - ég held bara að þetta gæti tekist! Núna er fólk farið að mæta eins og ég veit ekki hvað og allt komið í gang - líka kannski kominn tími til!!!

Svo er Nína systir flutt á Bifröst - hér eftir verð ég ein heima virka daga en ég hef grun um að það verði fjölmenni um helgar - gaman að því!
Nú er bara um að gera að kíkja í heimsókn!!!

Stelpan