Sumrinu formlega lokið!
Já ég fór áðan niður í Nýsköpunarsjóð og skilaði inn lokaskýrslunni fyrir sumarverkefnið mitt!
Þetta þýðir að sumarvinnunni minni er formlega lokið! Húrra!
Ég vil þakka öllum þeim sem buðu fram aðstoð, hvöttu mig áfram og studdu í þessu verkefni sem um tíma leit út fyrir að vera óendanlegt!
Nú get ég farið að einbeita mér betur að skólanum og horfa fram á við!
Nú, síðan er víst búið að klukka mig allavega tvisvar svo ég neyðist víst til að fara að svara.
Fyrir þá sem vita ekki hvað ég er að tala um þá er þetta skilgreiningin á klukki:
"Klukk er internetfár sem tröllríður bloggheimum þessa klukkutímana og felur í sér að viðkomandi fórnarlamb klukks á að skrifa fimm handahófskennd persónuleg atriði (sem hinn sótsvarti almúgi vissi ekki fyrir væntanlega) og klukka svo nokkur stykki bloggara til viðbótar."
Here we go:
Nr. 1 - Ætli ég byrji ekki á því að state the obvious - ég elska bleikt, ég elska skó og ég elska töskur! Það gefur því auga leið að bleikir skór og bleikar töskur eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér! Einnig er ég mjög glysgjörn og þá er bleikt bling ekki óvinsælt!
Nr. 2 - Ég er lofthrædd. Mér líður t.d. illa ef ég fer of hátt í rólu, ef ég horfi fram af einhverju háu og jafnvel þegar ég sé annað fólk stunda einhverskonar loftævintýraiðju. Þess má jafnframt geta að þessi lofthræðsla mín gerir það að verkum að mér er með öllu ómögulegt að gera handahlaup eða handstöðu. Það að fólk skuli fórna sér svona með því að stökkva fram fyrir sig er mér með öllu óskiljanlegt!
Nr. 3 - Það má segja svona nokkurnveginn að ég sé alæta en þó eru nokkrir hlutir sem ég ekki borða. Þar má fyrst nefna grænar baunir en þær þykja mér einstaklega gumslegar og creepy. Ég borða ekki heldur ólífur, bakaðar baunir og flest allt svona sterkt ógeð (jalapenos o.þ.h.). Þess fyrir utan ét ég nánast allt sem að kjafti kemur!
Það skal þó tekið fram að þessi upptalning á ekki við um einhverskonar Afríku-tribal-mat (ef svo má kalla) eða ógeðið sem fólkið er látið éta í Survivor - aðeins er átt við venjulegan íslenskan mat!
Nr. 4 - Ég þjáist af stundvísi og skipulagsþörf. Já, ég segi að ég þjáist af þessu því stundum getur þetta farið out of hand! Það er mér t.d. með öllu ómögulegt að mæta of seint í skólann eða á æfingu - ef einhverra hluta ég er sein þá er kennarinn/þjálfarinn líka seinn og ég missi ekki af neinu. Sömuleiðis skal ég alltaf vera fyrsta manneskjan í afmæli/veislur/partý/matarboð og annars konar samkomur - sama þótt ég leggi mig fram við að vera of sein! Hvað varðar skipulagið þá segir það sig nokkuð sjálft - það þarf alltaf allt að vera á hreinu! Heima hjá mér þarf allt að vera á sínum stað og ef fólk getur ekki skilað hlutunum á sinn stað þá nýtur það óvinsælda. Þetta skipulag kemur líka fram á öðrum sviðum líkt og í skólanum og í vinnunni.
Nr. 5 - Ég er mikill Friends aðdáandi og hef séð þættina oftar en góðu hófi gegnir. Það er kominn þónokkur tími síðan ég hætti að "horfa" á þættina - ég læt þá bara yfirleitt rúlla á meðan ég geri eitthvað annað og yfirleitt get ég farið með heilu dialogin með þáttunum. Að þessu sögðu vil ég skora á hvern þann sem þykist kunna Friends betur en ég í einvígi í Friends-spilinu!
Nú, þá er ég búin að skila mínu og ég klukka hér með hvern þann sem las þennan lista, er með blogg og er ekki búinn að skrifa lista sjálfur!
Stelpan

<< Home