Beiskja
Ok, nú er ég bara mátulega mikil kvenréttindabaráttukona!
Jújú, ég væri alveg til í hærri laun og mér finnst að konur eigi að standa jafnfætis karlmönnum þegar kemur að því að ráða í einhver bigshot störf (gefið að sjálfsögðu að konan sé jafn hæf og karlmaðurinn) og allur þessi pakki!
Hins vegar er ég ekki ein af þeim rauðsokkum sem sjá rautt og skrifa greinar í moggann og eru með uppsteit vegna þess að það sést í skoru á tímariti eða af álíka ástæðum!
Nei, ég er bara mjög temmileg kvenremba!
Þess vegna finnst mér líka mjög fyndið þegar fólk hreinlega missir sig í pirringnum út af fyrrnefndum rauðsokkum og hreinlega gerir uppreins gegn kvenkyninu í heild!
Dáldið mikið drama fyrir minn smekk!
Ok, ég geri mér fulla grein fyrir því að þessi grein kemur af Baggalúti - en það er samt svo greinilegt að undir niðri kraumar beiskjan og pirringurinn!
Ég átta mig ekki á því hvort það er vegna þess að hann sjálfan langar að halda karlafund eða fara í "manikjúr" og lesa tískublað - en eitthvað er það!
Mér sýnist út frá þessu að það sé miklu erfiðara að vera karlmaður á Íslandi en kvenmaður!
Stelpan

<< Home